A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörskrá og kjörfundur

Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. maí 2014

 

Kjörskrá og kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga  31. maí 2014

Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is/sveitarstjornarkosningar-2014/ til að kynna sér hvar það er skráð.

  

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga

Ein kjördeild verður í Strandabyggð og verður kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3, Hólmavík.    

Kjörfundur hefst kl. 09:00  laugardaginn 31. maí 2014 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00 (sbr. 66 gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998).
  
Talning atkvæða fer fram í lok kjörfundar.


Sérstök athygli kjósenda er vakin á 55. gr. laga nr. 5/1998:
"Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil."


Oddviti kjörstjórnar Strandabyggðar,
Guðmundur Björgvin Magnússon

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón