A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörfundur í Hnyðju

| 19. október 2012
Eins og áður hefur komið fram hér á vefnum fer fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnskipunarlaga og tiltekin álitaefni þeim tengd laugardaginn 20. október. Kjördeildin í Strandabyggð verður staðsett í Hnyðju að Höfðagötu 3 á Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 9:00 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00. Athygli er vakin á nýrri staðsetningu kjörfundar, en síðustu ár hafa kjörfundir farið fram í Íþróttamiðstöðinni.


Sérstök athygli kjósenda er vakin á 79. gr. laga nr. 24/2000:
,,Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér svo sem með því að segja til sín og framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörstjórninni afhendir kjörstjórn honum einn kjörseðil". 

Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is/thjodaratkvaedagreidslur2012/kjorskra/ til að kynna sér hvar það er skráð.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón