A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Breytingar á nefndum í Strandabyggð

| 14. janúar 2011

Í þessari viku hafa þrjár nefndir fundað í síðasta sinn og verða nú lagðar niður í núverandi mynd vegna breytinga á nefndum sveitarfélagsins. Menningarmálanefnd fundaði í síðasta sinn mánudaginn 10. janúar 2011 en í nefndinni voru Salbjörg Engilbertsdóttir formaður, Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Lýður Jónsson, Ester Sigfúsdóttir og Steinunn J. Þorsteinsdóttir. 

Íþrótta- og tómstundanefnd fundaði í síðasta sinn miðvikudaginn 12. janúar 2011. Í þeirri nefnd voru Hildur Guðjónsdóttir formaður, Kristján Sigurðsson ritari, Vala Friðriksdóttir, Aðalbjörg Guðbrandsdóttir og Kristjana Eysteinsdóttir. Menningarmálanefnd og Íþrótta- og tómstundanefnd verða lagðar niður og í stað þeirra verður ein nefnd sett á laggirnar í hagræðingarskyni. Skipað verður í nýja nefnd á næsta sveitarstjórnarfundi þann 18. janúar n.k.

Miðvikudaginn 12. janúar 2011 hélt Félagsmála- og jafnréttisnefnd einnig sinn síðasta fund en í þeirri nefnd voru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir formaður, Bryndís Sveinsdóttir, Jóhanna Guðbrandsdóttir, Sverrir Guðmundsson og Rósmundur Númason. Ný sameiginleg Velferðarnefnd Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar og Reykhólahrepps tekur við hlutverki Félagsmálanefndarinnar og jafnréttismálin verða færð inn í Atvinnumála- og hafnarnefnd. Fulltrúar fyrir hönd Strandabyggðar Í nýrri velferðarnefnd eru Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Rósmundur Númason.

Sveitarfélagið Strandabyggð þakkar nefndarmönnum í nefndunum þremur kærlega fyrir unnin störf. 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón