A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

| 05. desember 2013

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á rétti fólks til að sækja um  styrki skv. 27.grein laga nr. 59/1992  um málefni fatlaðs fólks, með síðari breytingum.

 

Byggðasamlaginu er heimilt að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing.  Einnig  er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk  til verkfæra og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfssemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða  endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

 

Umsóknafrestur er til 3 janúar 2014 og skulu umsóknir berast til félagsþjónustu lögheimilissveitarfélags, umsóknaeyðublöð og reglur um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa  eru að finna hjá viðkomandi félagsþjónustu.

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón