A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Auglýsing um skipulagsmál í Strandabyggð

| 21. september 2015

Auglýsing um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 - 2022.

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti á fundi sínum 7. júlí  2015 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022  samkvæmt 2. mgr.  36.  gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

Um er að ræða óverulega breytingu á aðalskipulagi sem felur ekki í sér stórvægilegar breytingar á landnotkun.  Verið er að fella út reit S13, sem ekki er lengur þörf fyrir og bæta við nýjum reit, V8,       í staðinn.  Með breytingunni er verið að samtvinna verslun og þjónustu á svæðinu og samnýta þannig vegi, bílastæði og lagnakerfi. 

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.  Uppdráttur er sýnir breytinguna er til sýnis á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3 á Hólmavík og á heimasíðu Strandabyggðar,  www.strandabyggd.is.



Gísli Gunnlaugsson

skipulags- og byggingarfulltrúi

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón