Innskráning

A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumar í Strandabyggð

03. júlí 2025 | Þorgeir Pálsson
Kæru íbúar Strandabyggðar,  

Það er komið sumar og margt ber þess merki á Hólmavík þessa dagana. 

Í gær lauk rúmlega 600 km Vestfjarðagöngu Kristjáns Atla Sævarssonar, við félagsheimilið hér á Hólmavík.  Nokkur fjöldi fólks fagnaði þessu frábæra afreki með honum og eftir léttar veitingar, ræður og gott spjall, fór Kristján Atli og fjölskylda í súpu á Galdrasafninu, í boði Strandabyggðar.  Hér er hægt að lesa nánar um þetta frækilega afrek Kristjáns Atla í frétt RÚV.  Annar göngugarpur, Reynir Pétur, sem þekktur er m.a. fyrir sína göngu um Ísland fyrir um 40 árum, var einnig með til að fagna þessum áfanga.  

Það er vert að þakka kvennfélagskonum kærlega fyrir að taka að sér að setja niður blóm í blómakörin. Þau lífga sannarlega uppá bæinn.

Þá er komið frábært listaverk á vegg gengt Galdrasafninu eftir krakka sem voru á myndlistarnámskeiði nýlega hjá þeim Andra Frey og Einari! Frábært og vert að skoða.

Og að lokum má nefna og gleðjast yfir því að framkvæmdir við leikskólalóðina ganga vel!

Hér fylgja nokkrar myndir síðustu daga.

Áfram Strandabyggð!

Umf.Geislinn auglýsir

03. júlí 2025 | Salbjörg Engilbertsdóttir
Fótbolti, frjálsar, leikir, badminton, fimleikar við erum opin fyrir öllu.

 

Ungmennafélagið Geislinn leitar að þjálfara/þjálfurum til þess að sjá um íþróttaæfingar á vegum félagsins veturinn 2025 - 2026

 

Æskilegt er að æfingar séu á eftirfarandi tímum:

 Yngri hópur 13:45 – 14:30 Eldri hópur 14:45 – 15:45

 Þó erum við opin fyrir öðrum æfingatímum eins og kl. 16:00

Svæðisskipulag Vestfjarða 2026-2050 Vinnslutillaga til kynningar og umsagnar.

19. júní 2025 | Heiðrún Harðardóttir

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða samþykkti fyrir hönd allra sveitarfélaga á Vestfjörðum, þann 26. maí 2025 vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða 2026-2050.

 

Vinnslutillagan byggir á lýsingu svæðisskipulagsins sem kynnt var á samráðsfundum með íbúum á Vestfjörðum vorið 2024. Á grundvelli samráðsins vann svæðisskipulagsnefnd í samvinnu við sveitarfélögin, frumdrög svæðisskipulagsins og birtu þau undir lok sama árs. Í frumdrögum er kynnt sú framtíðarmynd að íbúum á Vestfjörðum fjölgi og verði að lágmarki 11.000 manns árið 2050.  

Í vinnslutillögu svæðisskipulagsins er sett fram framtíðarsýn og sameiginleg stefna sveitarfélaga á Vestfjörðum til ársins 2050, með tillögu að leiðarljósum og markmiðum á fimm málefnasviðum; náttúru og auðlindir, grunnkerfi, samfélagsauð, atvinnu og nýsköpun og menningarauð.  Óskað er umsagnar um þessar tillögur og annað efni vinnslutillögunar, til að móta endanlega svæðisskipulagstillögu sem áætlað er að verði sett fram í upphafi árs 2026.

Með vinnslutillögunni fylgja einnig drög að stöðumati tilögunnar þar sem tilgreind eru helstu forsendur skipulagstillögunnar.


Tillagan verður opin til umsagnar í Skipulagsgátt frá 6. júní til og með 20. ágúst  2025.    https://skipulagsgatt.is/issues/2024/603   

 

Nánari upplýsingar um birtingu tillögunnar má einnig finna á heimasíðu Vestfjarðastofu, www.vestfirdir.is

 

Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða.

Menningarverðlaun Strandabyggðar 2025

19. júní 2025 | Heiðrún Harðardóttir
Menningarverðlaun Strandabyggðar og heiðursverðlaun Strandabyggðar voru veitt við hátíðlega athöfn 17 júní við Íþróttamiðstöðina á Hólmavík. 

Heiðursverðlaun Strandabyggðar hlaut Aðalbjörg Þóra Þorsteinsdóttir fyrir margra ára óeigingjarnt starf í menningarsetrinu Strandakúnst. Aðalbjörg var ein af stofnendum handverksfélagsins Strandakúnst og hefur hún starfað hjá félaginu á hverju sumri í yfir 30 ár. Aðalbjörg var einnig formaður handverksfélagsins í 8 ár. Aðalbjörg er frumkvöðull, dugleg og með mikla ástríðu fyrir handverksfélaginu Strandakúnst. 

Menningarverðlaun Strandabyggðar hlaut Leikfélag Hólmavíkur fyrir metnaðarfullt menningarstarf í sveitarfélaginu og fyrir öflugt starf við uppsetningu og framsetningu á leiksýningunni 39 þrep. Leikfélag Hólmavíkur setti upp stóra og tilkomumikla leiksýningu sem var sýnd í Bragganum á Hólmavík fimm sinnum í vetur. Mikil vinna var sett í leikmynd, leikmuni, búninga og aðra umgjörð í kringum leiksýninguna. Þessi metnaðarfulla vinna leikfélagsins varð til þess að leiksýningin 39 þrep var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins af Þjóðleikhúsinu. Leikfélag Hólmavíkur sýndi því 39 þrep á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í lok maí. 

Bestu hamingjuóskir til verðlaunahafa. 

Leiðrétting vegna fréttar RÚV um tap á rekstri Strandabyggðar árið 2024

16. júní 2025 | Þorgeir Pálsson
Kæru íbúar Strandabyggðar, 

Vegna umfjöllunar á RÚV í gær um tap á rekstri Strandabyggðar á árinu 2024, sem sagt er vera 94 milljónir, er rétt að undirstrika að tap á rekstri A og B hluta sveitarfélagsins var samtals 49 milljónir. Fréttamaður hefur bætt við þessa tölu tapi á rekstri A hluta, að því er virðist. Ég hef þegar óskað eftir leiðréttingu á þessu. Ein helsta skýringin á þessu tapi, er að framlög Jöfnunarsjóðs drógust saman á síðasta ári um 160 milljónir og það munar um það.  Hagnaður var á rekstri Strandabyggðar árið 2023 um 75 milljónir.

Það er betra að hafa þetta rétt.
Áfram Strandabyggð 

Aðalskipulag Strandabyggðar - Afgreiðsla sveitarstjórnar

12. júní 2025 | Heiðrún Harðardóttir

Afgreiðsla sveitarstjórnar 

Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti þann 13. maí 2025 tillögu að Aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036 að lokinni kynningu.

Tillagan var auglýst frá 20. desember 2024 til 28. febrúar 2025. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartímanum og var við lokaafgreiðslu tekin afstaða til þeirra og gerðar nokkrar breytingar á auglýstri tillögu með hliðsjón af umsögnum.  


Samþykkt Aðalskipulag Strandabyggðar 2024-2036 hefur verið sent Skipulagsstofnun til staðfestingar.  Aðalskipulagstillagan og öll fylgigögn máls eru aðgengileg í  Skipulagsgátt á slóðinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/675


Þeir sem óska nánari upplýsinga geta sent fyrirspurn til skipulagsfulltrúa í tölvupóstfangið skipulags@dalir.is  

 

Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar

Strandir.is - fréttir

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón