Ný sameiginleg félagsmálanefnd - öflugra samstarf
Öflugra samstarf stendur nú fyrir dyrum milli sveitarfélaganna Strandabyggðar, Árneshrepps, Kaldrananeshrepps og Reykhólahrepps. Sveitarfélögin hafa samþykkt að stofna sameiginlega félagsmálanefnd og stofna formlega félagsþjónustu. Í nýju nefndinni verða fimm fulltrúar, tveir fulltrúar frá Strandabyggð og einn fulltrúi frá hinum sveitarfélögunum. Undirbúningshópur vinnur nú að samningi um félagsmálanefndina og skilgreinir starfslýsingu, starfshlutfall og menntunarkröfur fyrir starf félagsmálastjóra en sú staða verður auglýst von bráðar.
Námskeið í sápugerð á Hólmavík
Námskeiðið verður haldið á Hólmavík fimmtudaginn 18.nóvember og stendur frá kl 19:30-22:00. Námskeiðsgjald er kr 6900 á hvern þátttakanda og er efnisgjald innifalið. Einnig verður hægt að kaupa efni á staðnum til að prófa sig áfram heima. Skráning er á frmst.is eða kristin@frmst.is (sími 8673164) og stendur skráningin til 15. Nóvember.
Sjá nánar um sápur á sapan.is.Fjárhagsáætlun Strandabyggðar 2011
Nú stendur yfir fjárhagsáætlanagerð Strandabyggðar fyrir árið 2011. Ljóst var eftir að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og áætlanir jöfnunarsjóðs voru lagðar fram nú í október að sveitarfélög á Íslandi þurfa að hagræða í rekstri sínum.
Við leitum nú til íbúa Strandabyggðar um hugmyndir og tillögur að því hvar megi hagræða og spara í rekstri sveitarfélagsins - og hvar ekki. Hægt er að senda inn tillögur hér eða á netfangið: holmavik@holmavik.is. Einnig er hægt að senda þær í pósti til skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík fyrir 1. desember 2010.
Allir íbúar eru hvattir til að taka þátt!
Aðalskipulag Strandabyggðar 2010-2022
Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur samþykkt tillögu að aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla voru til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins, hjá Skipulagsstofnun og á heimasíðu sveitarfélagsins, http://strandabyggd.is/adalskipulag/skrar_og_skjol/ með fresti til að gera athugasemdir til 28. júlí 2010. Átta athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað. Gerðar voru minniháttar breytingar á tillögunni, sjá skýringar vegna aðalskipulags á heimasíðu Strandabyggðar. Aðalskipulagstillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar.
Hólmavík, 3. nóvember 2010
Sveitarstjóri Strandabyggðar.