Danir í heimsókn á Hólmavík
...
Meira
Ungt fólk á Ströndum fæst við margt í frístundum sínum. Íþróttir eru stór hluti af þeim, en þar hefur náðst frábær árangur undanfarið. Keppendur frá Héraðssambandi Strandamanna gerðu góða ferð á Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fór á Egilsstöðum um verslunarmannahelgina. Hadda Borg Björnsdóttir, íþróttamaður ársins hjá HSS árið 2010, bætti árangur sinn í hástökki, stökk 1,62 metra og nældi sér í gull. Harpa Óskarsdóttir á Drangsnesi varð landsmótsmeistari í spjótkasti 13 ára með kast upp á 31,74 metra, en hún náði einnig 7. sæti í kúluvarpi. Þá náði Ólafur Johnson bronsi í spjótkasti 12 ára stráka og Arna Sól Mánadóttir frá Umf. Hörpu varð í fimmta sæti í spjótkasti í flokki 14 ára.
...Nú eru starfsmenn Grunn- og Tónskólans á Hólmavík að hefja störf að nýju eftir sumarleyfi og í óðaönn að undirbúa skólaárið 2011-2012. Skólasetning verður í Hólmavíkurkirkju, föstudaginn 19. ágúst nk. kl. 12:00. Eftir skólasetningu fara nemendur í skólann og hitta kennarana sína og fá stundaskrár, skóladagatal, innkaupalista og fleiri gagnleg gögn. Hefðbundið skólastarf hefst eftir stundaskrá mánudaginn 22. ágúst kl. 8:10.
...