A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Veist þú um góða hugmynd? - Fjárfestingarátak í Brothættum byggðum.

| 27. apríl 2020

---English below---

Alþingi samþykkti í síðasta mánuði að efla verkefnið Brothættar byggðir með 100 mkr framlagi, sem hluta af verkefnum til að mæta heimsfaraldri kórónuveiru. Sveitarfélagið Strandabyggð tekur þátt í þessu verkefni frá síðustu áramótum. 

 

Ákveðið hefur verið að nýta þetta viðbótarfjármagn til að efna til sérstaks fjárfestingarátaks í Brothættum byggðum. Fjármagnið skiptist í tvo hluta, Frumkvæðissjóð og Öndvegissjóð. Í Frumkvæðissjóði verður fjárhæð sem skiptist jafnt á milli þeirra sjö byggðarlaga sem eru þátttakendur í verkefninu Brothættar byggðir. Í Öndvegissjóði verður sett fjárhæð í samkeppnissjóð sem verkefni úr byggðarlögunum sjö keppa um. 

 

Verkefnisstjórn fyrir Strandabyggð hefur ákveðið að þeim fjármunum sem ráðstafað er til Frumkvæðissjóðs verði úthlutað, ásamt árlegu styrkfé verkefnisins, eftir að íbúaþing hefur farið fram í Strandabyggð og í samræmi við þær áherslur sem íbúaþingið setur. Fyrir Öndvegissjóðinn vill verkefnastjórn auglýsa eftir hugmyndum að verkefnum til eflingar atvinnu- og menningarlífi sem hægt sé að ráðast í hratt og örugglega. 

 

Öndvegissjóðurinn er sameiginlegur fyrir öll þátttökubyggðarlögin sjö og gefst að hámarki tveimur verkefnum úr hverju byggðarlagi kostur á að senda inn umsókn að undangengnu vali verkefnisstjórnar á verkefnum í þennan pott. Tíminn er naumur, því það er krafa í fjárveitingu Alþingis, að verkefnin þurfa að hefjast fyrir 1. september 2020 og þeim þarf að vera lokið fyrir 1. apríl 2021. Verkefnin þurfa að samræmast markmiðum verkefnisins Brothættar byggðir, en farið verður eftir ákveðnum matsþáttum við val á hugmyndum.

 

Verkefnisstjórn kallar nú eftir hugmyndum að verkefnum frá samfélaginu til að beina í Öndvegissjóðinn. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Vert er að taka fram að þær hugmyndir sem ekki verða valdar til umsóknar í Öndvegissjóðinn geta sótt í Frumkvæðissjóðinn sem auglýstur verður skömmu eftir íbúaþingið. Athugið að nafn þarf ekki að fylgja hugmyndinni og hún þarf ekki að vera þín eigin, því gefst einnig kjörið tækifæri að benda á tækifæri náungans. 

 

Hugmyndir skulu sendar í gegnum rafrænt form í síðasta lagi 10. maí 2020. Ekki er tekið við hugmyndum eftir öðrum leiðum eða eftir þann tíma. Ef þú þarft aðstoð má hafa samband við stafsfólk Vestfjarðastofu eða fulltrúa í verkefnastjórn.

 

Rafrænn kynningarfundur um verkefnið Brothættar byggðir og þessa söfnun á hugmyndum að verkefnum fyrir Öndvegissjóðinn verður haldinn á Zoom miðvikudaginn 29. apríl kl. 15:00. Þar verður hægt að fá nánari upplýsingar sé þess óskað. Hlekkurinn til að tengjast netfundinum verður birtur á heimasíðu Strandabyggðar samdægurs.

 

Við hvetjum íbúa til að senda inn hugmyndir og stuðla þannig að kröftugri byrjun í Brothættum byggðum og enn sterkari Strandabyggð.
---
English: We are looking for ideas to strengthen our community. One or two ideas will be chosen to compete for a special grant for Fragile communities. Please leave your ideas in this form no later then May 10th and remember, all ideas are good ideas. 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón