A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Vegna ljósleiðaratenginga sunnan Hólmavíkur

| 18. janúar 2018

Lagning ljósleiðara í Strandabyggð, til bæja sunnan Hólmavíkur hefur staðið yfir síðan í vor. Nú er tengingum og skráningu lokið og þá eiga fasteignaeigendur kost á 100 Mb/s internettengingu, heimasímaþjónustu og gagnvirkri sjónvarpsþjónustu frá bæði Símanum og Vodafone.

Þeir sem ætla að nýta sér ljósleiðarann skulu hafa samband við sitt fjarskiptafyrirtæki og panta sér þjónustu.

Sveitarfélagið Strandabyggð fagnar þessum áfanga og þakkar öllum sem komu að verkefninu fyrir gott samstarf. Stefnt er að því að næstu skref í lagningu ljósleiðara í dreifbýli Strandabyggðar verði núna á árinu 2018.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón