A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík

| 21. júní 2011
Sumarið er tíminn - til að taka til!
Sumarið er tíminn - til að taka til!

Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna verður haldinn á Hólmavík n.k. fimmtudag, 23. júní 2011. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss Strandabyggðar fjarlægi rusl. Eru allir hvattir til að taka þátt í að fegra bæinn og nýta sér þessa þjónustu sveitarfélagsins. Fyrirtæki og stofnanir eru hvött til að hafa samband við Snorra Jónsson hjá Áhaldahúsi Strandabyggðar í síma 8614806. 

Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík er liður í hreinsunarátaki í Strandabyggð sem stendur yfir þessar vikurnar. Nú eru allir Strandamenn sem vettlingi geta valdið að fagna sumri og fegra umhverfi sitt. Hægt er að kaupa sumarblóm í mörgum litum og gerðum hjá Drífu Hrólfsdóttur að Ósi: Stjúpur, hádegisblóm, nellikur, morgunfrú, lobelia (hengiblóm), snædrífu, tópakshorn, margaritu og sólboða. Síminn í blómasölunni er 898-5470 og 451-3370.  

Lausamunir í landi Strandabyggðar

Nýtt gámasvæði í Skothúsvík og nýtt geymslusvæði í landi Víðidalsár er ný þjónusta við alla þá sem eiga gáma eða vantar geymslu undir tæki og tól og aðra geymslumuni. Eru allir þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu beðnir um að hafa samband við Áhaldahús Strandabyggðar. Eftir 8. júlí 2011 verður hafist handa við að hreinsa lausamuni af lóðum og landi í eigu sveitarfélagsins Strandabyggðar sem ekki er í útleigu. Eru allir sem eiga muni á fyrrnefndum stöðum hvattir til að fjarlægja þá fyrir 8. júlí 2011.


Umhverfisdagur á Hólmavík laugardaginn 25. júní
Umhverfisdagur verður haldinn á Hólmavík laugardaginn 25. júní 2011. Íbúar eru hvattir til að hreinsa til í kringum húsin sín og á opnum svæðum í hverfum sínum. Sorpsamlag Strandasýslu verður með opið þennan dag auk þess sem starfsmenn Áhaldahúss munu fara um bæinn og taka rusl á eftirfarandi tímum:

- 14:00 Bláa hverfið.
- 15:00 Appelsínugula hverfið
- 16:00 Rauða hverfið

Hreinn bær - okkur kær!

Umhverfisvikur í Gula hverfinu
Sorpsamlag Strandasýslu vera með aukagáma fyrir timbur (ekki rekavið) og járnarusl í Gula hverfinu á eftirtöldum stöðum í sumar:
- Bitrufjörður dagana 27. júní - 1. júlí 2011
- Kollafjörður dagana 4. - 8. júlí 2011
- Tungusveit dagana 11. - 15. júlí 2011
- Ísafjarðardjúp dagana 18. - 22. júlí 2011

Eru allir íbúar hvattir til að taka þátt í hreinsunarátakinu og nýta sér þessa þjónustu.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón