A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

ÚTBOÐ

| 11. febrúar 2017

Strandabyggð óskar eftir tilboðum í 2. áfanga, lokafrágangi, viðbyggingar leikskólans við Brunngötu á Hólmavík.

Viðbyggingin var reist s.l. haust úr steyptum útveggjum með timburþaki klæddu bárujárni.  Frágangi utanhúss er lokið að undanskilinni málun.  

Í öðrum áfanga verksins skal ljúka við allan frágang utan- og innanhúss í viðbyggingunni með innréttingum og tengingum við eldra hús.  Einnig skal vinna breytingar í hluta eldra húss leikskólans.

Viðbyggingin er 131 fermetri og 393 rúmmetrar að stærð.

Verklok eru áætluð 25. júlí 2017.

Útboðsgögn eru seld á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík. 
Útboðsgögnin kosta 5.000,- krónur.   
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn  1. mars 2017, kl. 11:00.

 

  

STRANDABYGGÐ

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón