A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starf sveitarstjóra Strandabyggðar

| 11. júní 2012

Starf sveitarstjóra í Strandabyggð er laust til umsóknar og er leitað eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að takast á við krefjandi verkefni.


Í Strandabyggð búa rúmlega 500 íbúar og er Hólmavík þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt, grunnskóli, leikskóli og tónskóli. Nánari upplýsingar um Strandabyggð er að finna á vefsíðunni
www.strandabyggd.is.



Starfsvið sveitarstjóra:

  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
  • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar
  • Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
  • Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við, vera talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum
  • Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum

 

Helstu kostir sveitarstjóra:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
  • Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, kynningarmálum, ímynd og stefnumótun
  • Reynsla af bókhaldi, stjórnun og rekstri
  • Þekking á sveitastjórnarmálum og opinberri stjórnsýslu.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

 

Nánari upplýsingar: Rannveig Jóna Haraldsdóttir, rannveig@hagvangur.is Umsóknarfrestur: Til og með 12.6.2012

Athugið: Í fyrstu auglýsingu Hagvangs var röng dagsetning, umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2012 en ekki 11. júní eins og þar kom fram.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón