A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Náttúrubarnaskólinn á Ströndum - dagskráin í júlí

| 13. júlí 2016

Náttúrubarnaskólinn stendur fyrir margvíslegum skemmtilegum viðburðum á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum í sumar. Námskeiðum fyrir náttúrubörn á öllum aldri, kvöldgöngum, fuglafjöri, spurningakeppnum, sagnaskemmtunum og mörgu fleira. Á svæðinu í kringum Sævang er fuglalífið ótrúlega fjölbreytt og fuglarnir orðnir vanir mannaferðum. Hægt er að klappa æðarkollunni Kollfríði þar sem hún liggur á hreiðri sínu. Teistur verpa í manngerða kassa þar sem hægt er að fylgjast með teistum og ungunum þegar þeir koma úr eggjunum, en þeir halda til í kössunum í mánuð.

Í Náttúrubarnaskólanum er líka bruggað jurtaseyði, sent flöskuskeyti, litað með jurtalitum og sagðar draugasögur í sagnahúsinu sem stendur niðri í fjöru, en í því er líka að finna eina plastdýragarðinn á Íslandi. Börn vita ansi margt um náttúruna og það er gaman að vera með þeim á námskeiðunum þar sem vettvangurinn er ævintýraheimar fjörunnar.

Annars snýst Náttúrubarnaskólinn helst um að skemmta sér, upplifa og læra með því að sjá og snerta. Veita öllum þeim undrum eftirtekt sem eru rétt við tærnar á manni. Það er ótrúlegt hvað er margt skrítið í náttúrunni og hvað litlir hlutir geta verið stórmerkilegir þegar vel er að gáð. Það þarf líka að læra að bera virðingu fyrir náttúrunni.

Náttúrubarnaskólinn var fyrst starfandi sumarið 2015 og er þetta því annað árið sem hann er starfræktur. Hefur honum verið vel tekið.

Það er ýmislegt skemmtilegt framundan í júlí, hér fyrir neðan er dagskráin:

Fimmtudagurinn 14. júlí: Náttúrubarnanámskeið frá kl. 13:00-17:00 með fuglaþema, verð 3000 kr.

Þriðjudagur 19. júlí: Kvöldganga á Kirkjubólsfjall frá Sævangi kl. 20:00. Kökur og kaffi eftir gönguna, verð 1000 kr.

Miðvikudagur 20. júlí: Jurtanámskeið fyrir fullorðna þar sem við munum fræðast um notkun plantna á fyrri tímum, tínslu og varðveislu kl. 19:30-22:30 í Sævangi, búin verða til 4 mismunandi jurtaseyði sem þjóna mismunandi tilgangiHafdís Sturlaugsdóttir kennir á námskeiðinu, verð 3000 kr. kaffi og kökur innifaldar.

Fimmtudagur 21. júlí: Náttúrubarnanámskeið frá kl. 13:00-17:00, verð 3000 kr.

Helgin 23.-24. júlí: Helgarnámskeið Náttúrubarnaskólans 13:00-17:00 báða dagana, brot af því besta, verð 6000 kr.

Þriðjudagur 26. júlí: Kaffikvörn Náttúrubarnaskólans í Sævangi, skemmtilegur spurningaleikur fyrir alla fjölskylduna, vöffluhlaðborð fyrir 1200 kr.

Fimmtudagur 28. júlí: Náttúrubarnanámskeið með galdraþema kl. 13:00-17:00, verð 3000 kr.

Ennþá geta bæst við fleiri skemmtilegir viðburðir og verða þeir auglýstir þegar nær dregur á Facebook-síðu Náttúrubarnaskólans: facebook.com/natturubarnaskolinn. Skráning á viðburðina fer fram í síma 661-2213 hjá Dagrúnu eða á natturubarnaskoli@gmail.com.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón