A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Menningarverðlaun Strandabyggðar

| 01. júlí 2014
Lóan, Manningarverðlaun Strandabyggðar, voru veitt í fimmta skiptið á Hamingjudögum síðastliðin laugardag.

Menningarverðlaun eru veitt sem árleg hvatning til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektavert framtak á sviði menningar og lista í sveitarfélaginu á líðandi ári. Ákvörðun um handhafa verðlaunanna er tekin af tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd að fengnum tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins. Auk þess sem nefndin hefur heimild til að bæta við tilnefningum.


Verðlaunagripurinn Heiðlóan veitist þeim er hlýtur menningarverðlaunin ár hvert. Heiðlóan er hönnuð og smíðuð af handverksmanninum Hafþóri Ragnari Þórhallssyni og var hún nú veitt í fimmta sinn. Áður hafa leiklistarval Grunnskólans, Þjóðfræðistofa, Einar Hákonarson og Sauðfjársetur á Ströndum hlotið Menningarverðlaunin. Galdrasýningin á Ströndum, Sauðfjársetrið og Viðar Guðmundsson hafa einnig hlotið sérstaka viðurkenningu fyrir framlag til menningarmála á Ströndum.

Í ár hlaut Leikfélag Hólmavíkur Menningarverðlaunin fyrir ötult starf í áraraðir, fjölbreytta viðburði og metnaðarfull verkefni á árinu, einkum uppsetningu Skilaboðaskjóðunnar í samstarfi við Grunn- og tónskólann á Hólmavík.

Innilega til hamingju með Menningarverðlaunin og bestu þakkir fyrir ykkar framlag.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón