A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf - Staða forstöðumanns Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða

| 16. nóvember 2016

Staða forstöðumanns

Fræðslumiðstöð Vestfjarða óskar eftir að ráða forstöðumann. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að sjá um daglegan rekstur miðstöðvarinnar og leiða hana áfram í uppbyggjandi starfi.

 

Starfssvið

Ábyrgð á daglegum rekstri s.s. starfsmannastjórnun og fjármálum.

Skipulagning og umsjón með símenntun og framhaldsfræðslu.

Kynningamál og þróunarvinna.

Ýmis önnur verkefni sem til falla.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun í uppeldis- og kennslufræði er kostur.

Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu.

Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun.

Færni í mannlegum samskiptum.

Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Færni í íslensku ritmáli, ensku og tölvum.

 

Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Fræðslumiðstöð Vestfjarða er sjálfseignarstofnun með höfuðstöðvar á Ísafirði og starfsstöðvar á Hólmavík og Patreksfirði. Meginmarkmið eru að auðvelda íbúum á Vestfjörðum símenntun og framhaldsfræðslu sem felur í sér nám, náms- og starfsráðgjöf og raunfærnimat. Fræðslumiðstöðin hefur viðurkenningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins sem fullorðinsfræðsluaðili skv. lögum um framhaldsfræðslu og EQM-gæðavottun. Nánari upplýsingar um Fræðslumiðstöðina er að finna á vefsíðunni  frmst.is

 

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2016.

 

Umsóknir skal senda Smára Haraldssyni, forstöðumanni Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Suðurgötu 12, 400 Ísafjörður, eða með tölvupósti á smari@frmst.is

 

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og greinargott kynningarbréf sem færir rök fyrir hæfni umsækjanda.

 

Starfið er laust frá 1. mars 2017, eða samkvæmt samkomulagi.

 

Nánari upplýsingar veitir Smári Haraldsson í síma 456 5033 eða netfang smari@frmst.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón