A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Lausar stöður tómstundafulltrúa og íþróttakennara

| 11. janúar 2019

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftirfarandi störf laus til umsóknar

 

Tómstunda- og íþróttafulltrúi

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf Tómstunda- og íþróttafulltrúa. Um er að ræða 70% starfshlutfall, með möguleika á hækkun í 100%

Hér er um að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem skapandi og skipulagðir einstaklingar sem hafa  unun af samskiptum og samstarfi við ungt fólk ættu að blómstra.

Markmið og verkefni

  • Skipulagning og umsjón með starfssemi félagsmiðstöðvarinnar Ozon
  • Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar
  • Undirbúningur vegna vinnuskóla Strandabyggðar og sumarnámskeið
  • Standa fyrir tómstundastarfi og efla þátttöku einstaklinga og hópa sem hafa lítið framboð við hæfi í Strandabyggð
  • Stuðningur við sjálfboðaliðasamtök, tómstundum, afþreyingu og íþróttum
  • Verkefnastjórnun bæjarhátíðar
  • Fagleg umsjón með frístundastarfi grunnskólabarna.
  • Önnur verkefni sem tómstundafulltrúa er falið af sveitarstjóra og fallið geta undir starfssvið tómstundafulltrúa.

Menntun, færni og eiginleikar

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Styrkur í ákvarðanatöku
  • Starfsreynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum
  • Skipulags- og stjórnunarfærni
  • Samskiptafærni og geta til að tjá sig í ræðu og riti
  • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
  • Hvetjandi og góð fyrirmynd.
  • Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

 

Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2019.

Nánari upplýsingar veita:

Ingibjörg Benediktsdóttir, Oddviti Strandabyggðar, sími: 663-0497 og/eða Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri, sími 899-0020.

 

Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist Þorgeiri Pálssyni á sveitarstjori@strandabyggd.is eða á Strandabyggð Höfðagötu 3, 510 Hólmavík.

 

 

 

Íþróttakennari við Grunnskólann á Hólmavík

 

Um er að ræða 50% starf við kennslu og möguleiki á þjálfun til viðbótar í samstarfi skólans og íþróttahreyfingarinnar á svæðinu. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

 

Markmið og verkefni

  • Leitað er eftir einstaklingum með góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum
  • Íþróttakennari mun vinna náið með Tómstunda- og íþróttafulltrúa, að almennri uppbyggingu og eflingu íþróttastarfs í Strandabyggð.

 

Menntun, færni og eiginleikar

  • Umsækjendur um kennarastarf þurfa að hafa kennsluréttindi
  • Þjálfararéttindi eru kostur.
  • Reynsla af samkennslu og áhugi á þróunarstarfi er kostur
  • Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum LN og KÍ.

 

Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2019

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430

 

Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur á skolastjori@strandabyggd.is eða Grunnskólinn á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík

 

Strandabyggð samanstendur af þéttbýliskjarnanum Hólmavík og sveitunum þar í kring, og er staðsett á Ströndum á Vestfjörðum. Staðsetningin er hérumbil miðja vegu á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Íbúafjöldinn er um 500 manns, en samfélagið eru einkar fjölbreytilegt og afþreying margvísleg. 

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón