A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Landsþing ungmennahúsa

| 27. janúar 2017
Hluti hópsins
Hluti hópsins


Landsþing ungmennahúsa fór fram á Hólmavík helgina 20.-22. janúar í boði Fjóssins, ungmennahúss Strandabyggðar. Þingið fór vel fram og voru þátttakendur ánægðir með dagskrána og heimsóknina yfirhöfuð. Eftirfarandi er fréttatilkynning frá Samfés um landsþingið: 

 

 

Ungmenni galdra á Hólmavík.

Landsþing ungmennahúsa.

 

Landsþing ungmennahúsa var haldið á Hólmavík um síðustu helgi. Ungt fólk á aldrinum 16-25 ára og starfsfólk ungmennahúsa komu víða að af landinu ásamt stjórn Samfés. Markmið landsþingsins var að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að hittast, móta starfsemi ungmennahúsa landsins, skiptast á hugmyndum, efla samstarfið og ræða málefni ungs fólks á Íslandi og hvað hægt sé að gera til að bæta starfið og tryggja að öll ungmenna á aldrinum 16-25 ára hafi jafnan aðgang að ungmennahúsi í sinni heimabyggð.

 

Dagskrá helgarinnar var fjölbreytt og tóku þátttakendur þátt í hópefli, fræðslu, umræðuhópum, smiðjum og auðvitað skemmtilegum kvöldvökum. Hjálmar Karlsson frá Rauða krossins á Íslandi og Anna G Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri Geðhjálpar héldu fyrirlestur um hjálparsíma Rauða krossins 1717 og herferðina Útmeða sem beinist að sjálfsvígs- og sjálfsskaða. Á landsþinginu var meðal annars talað um hversu mikilvægt það er að taka vel á móti flóttafólki, koma í veg fyrir fordóma með kynningu og fræðslu og tryggja aðgengi þeirra að námskeiðum og öðrum nauðsynlegum úrræðum. Bæta þarf alla fræðslu um andlega heilsu ungs fólks á öllum skólastigum og að andleg veikindi séu viðurkennd þá sérstaklega með aðkomu ríkisins með niðurgreiðslu á kostnaði.

 

Þátttakendum fannst að bæta þurfi enn frekar alla fræðslu um vinnuréttindi ungs fólks og Barnasáttmálann því margir unglingar vita ekki að verið sjá að brjóta á þeirra réttindum. Einnig að ríkið virði það að börn og unglingar eigi að koma að ákvörðunartöku í öllum málefnum sem snerta ungt fólk. Hópurinn heimsótti einnig Galdrasafnið og heitu pottana að Drangsnesi.

 

Ungt fólk vill hafa áhrif og er ekki sama um samfélagið og framtíð landsins.

Raddir ungs fólks skipta mjög miklu máli!

 

Nánari upplýsingar um Landsþing ungmennahúsa veitir Guðmunda Bergsdóttir, starfsmaður Ungmennahússins Pakkhúsið í s. 659-3373.

Einnig er hægt að hafa samband við Vicot, framkvæmdarstjóra Samfés, í s. 897-5254.

 

 

Kveðja,

 

Victor Berg Guðmundsson

Framkvæmdastjóri

Sími: 897-5254 / 411-5845

www.samfes.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón