A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Jafnréttisáætlun Stranda og Reykhólahrepps samþykkt

| 22. maí 2012

Allir sem búa og starfa í sveitarfélögunum fjórum, Árneshreppi, Kaldrananeshreppi, Reykhólahreppi og Strandabyggð, skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til uppruna, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða,stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu. Hugað skal sérstaklega að því að stuðla að jöfnum rétti karla og kvenna og vinna gegn stöðnuðum hugmyndum um hlutverk kynjanna sem hefta frelsi einstaklingsins til að geta notið sín á þeim sviðum sem slíkar staðalímyndir ná til.

 

Sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð taka skýra afstöðu gegn kynbundnu ofbeldi og beinnar og óbeinnar mismununar kynjanna. Þetta kemur m.a fram í jafnréttisáætlun sem Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps vann.

 

Í áætluninni er skýrt tekið á þáttum er varða launajafnrétti, endurmenntun, fræðslu, stjórnsýslu og þar með setu í nefndum og ráðum á vegum stjórnsýslunnar, samræmingu fjölskyldu og atvinnulífs og tómstunda-,íþrótta og menningarmála.

 

Aðgerðaáætlun fylgir og þar kemur skýrt fram hvaða þættir verða skoðaðir árlega og hverjir bera ábyrgð á að svo sé gert. Búið er að samþykkja jafnréttisáætlunina í hverju sveitarfélagi fyrir sig.

 

Sveitarfélögin fjögur hvetja líka fyrirtæki og stofnanir til að veita þeim einstaklingum sem stuðla með markvissum hætti að jafnrétti sínum á vinnustöðum eða í samfélaginu viðurkenningar vegna þeirrar vinnu. Jafnréttisáætlunina má sjá hér.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón