A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Íþróttamiðstöðin auglýsir störf

| 10. ágúst 2011

Íþróttamiðstöðin á Hólmavík auglýsir eftirtalin störf:

Starfsmaður í íþróttamiðstöð veturinn 2011 - 2012
- Afgreiðslustörf
- Baðvarsla í kvennaklefa
- Létt þrif
- Sundlaugarvarsla
- Önnur störf sem starfsmanni eru falin

Starfsmaður sinnir einnig móttöku grunnskólanemenda á öllum aldri sem sækja sund- og íþróttatíma í íþróttamiðstöðinni og þarf því að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum. Einnig er lögð áhersla á ríka þjónustulund, dugnað og sjálfstæð vinnubrögð.  

Vinnutími er frá kl. 10:30 - 14:00 mánudaga - fimmtudaga (tímasetning gæti breyst lítillega þegar stundatöflur Grunn- og Tónskólans á Hólmavík liggja fyrir).
 
Þar sem viðkomandi starfsmaður þarf að gegna baðvörslu í kvennaklefa koma konur eingöngu til greina í starfið.

Afleysingastörf
Íþróttamiðstöð auglýsir einnig eftir fólki í afleysingar veturinn 2011 - 2012

Rík áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, dugnað og sjálfstæð vinnubrögð.

Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum berist í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík eða með tölvupósti í netfangið sundlaug@holmavik.is í síðasta lagi föstudaginn 19. ágúst 2011.

Nánari upplýsingar gefur Gunnar Jónsson forstöðumaður í síma 893 - 4622.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón