A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Íþróttamaður ársins

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. janúar 2016
Rósmundur Númason íþróttamaður ársins 2015 og Vala Friðriksdóttir handhafi hvatningarviðurkenningar 2015. Ljósm.Jón Jónsson
Rósmundur Númason íþróttamaður ársins 2015 og Vala Friðriksdóttir handhafi hvatningarviðurkenningar 2015. Ljósm.Jón Jónsson
« 1 af 2 »
Íþróttamaður ársins 2015 í Strandabyggð var valinn í gær en Íþróttamaður ársins  skal valinn í janúar ár hvert.  Hann/hún þarf ekki að vera bundinn íþrótta- eða ungmennafélagi og er valið í höndum Tómstunda -íþrótta og menningarnefndar að undangengnum tilnefningum frá almenningi.  Á sama hátt og nefndin velur íþróttamann ársins er heimilt að velja einstakling eldri en 12 ára sem hlýtur hvatningarverðlaun en þau eru veitt íþróttamanni sem sýnir ríkan áhuga á sinni íþróttagrein, er góður félagi og góð fyrirmynd. Hvor um sig slítur viðurkenningarskjal og blómvönd en auk þess veitir Íþróttafélag lögreglumanna á Hólmavík Íþróttamanni ársins farandbikar. 

Íþróttastarf hefur verið í blóma á árinu. Skíðafélagið er alltaf jafn kraftmikið og hefur að auki sett alla umframorkuna í byggingu skíðaskála í Selárdal. Taekwondodeildin hefur unnið öflugt starf og bætt við sig beltum og verðlaunum. Frjálsíþróttahópurinn stóð sig vel og keppendur hafa keppt á nokkrum mótum á árinu og Strandamet  slegin. Hópur ungmenna keppti á Unglingalandsmóti með góðum árangri.  Víðavangshlaup er vinsælt sem aldrei fyrr og Íþróttamiðstöðin vel nýtt til íþróttaiðkunar. Þetta er þó bara brot af því sem gert er í íþróttastarfi.


Vala Friðriksdóttir hlaut hvatningarverðlaun Strandabyggðar en hún hefur unnið mikilvægt starf í þágu íþróttahreifingarinnar og íþróttaeflingar.  Hún er áberandi dugleg, hvetjandi og jákvæð í íþróttastarfi og sterkur íþróttamaður í skíðagöngu, hlaupi og taekwondo og hefur meðal annars hlaupið hálfmaraþon undanfarin ár í Reykjavíkurmaraþoni. Hún sér um Taekwondo deild Geislans, sinnir því af lífi og sál og sýnir mikinn metnað við kennslu og undirbúning nemenda sinna og hvetur þá áfram. Hún er fyrirmynd í heilbrigðum lífstíl og og hreyfingu.

Íþróttamaður ársins er Rósmundur Númason. 

Rósmundur hefur í áraraðir stundað skíðagöngu og víðavangshlaup með góðum árangri.  Hann hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoni síðasta sumar og keppti á flestum skíðagöngumótum með góðum árangri.  Á síðasta ári varð hann síðan Landvættur en þann titil hlýtursá einstaklingur sem lýkur keppni í eftirtöldum greinum á 12 mánaða tímabili:  Vesturhluti-50 km í Fossavatnsgöngu, Norðurhluti-Jökulsárhlaup 32.7 km hlaup, Austurhluti-Urriðavatnssundið 2,5 km og Suðurhluti-Blue Lagoon Challenge-60 km hjólreiðar frá Hafnarfirði.  Þetta tók Rósmund ekki nema 14 tíma.  Rósmundur er jákvæður íþróttamaður, hvetjandi, mikil fyrirmynd  og svo sannarlega vel að þessari viðurkenningu kominn.


Strandabyggð sendir verðlaunahöfum innilegar hamingjuóskir.



Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón