A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Ingibjörg Valgeirsdóttir verður sveitarstjóri Strandabyggðar

JJ | 20. júlí 2010
Ingibjörg Valgeirsdóttir
Ingibjörg Valgeirsdóttir

Ákveðið hefur verið að ráða Ingibjörgu Valgeirsdóttir sveitarstjóra Strandabyggðar næsta kjörtímabil. Ingibjörg starfar nú sem framkvæmdastjóri í eigin fyrirtæki Assa - þekking & þjálfun. Ingibjörg hefur lokið MBA námi við Háskólann í Reykjavík og er með BA próf í uppeldis- og menntunarfræðum. Hún hefur m.a. unnið við starfsmanna- og stjórnendaþjálfun og séð um framkvæmdastjórn í verkefnum á borð við hvatningarátakið Til fyrirmyndar og Stefnumót á Ströndum. Ingibjörg hefur mikla reynslu af vinnu með ungu fólki í vanda og var um tíma forstöðumaður unglingasmiðjunnar Stígs. Ingibjörg kemur til starfa í september, en þangað til sjá oddvitar Strandabyggðar um framkvæmdastjórn í sveitarfélaginu.

#1

Birna Hjaltadóttir, þriðjudagur 20 júlí kl: 18:30

Hjartanlega til hamingju með þessa ráðningu Strandabyggð, stórkostleg manneskja þarna á ferð! Framtíð Stranda er björt :)

Skrifaðu athugasemd:


Facebook

Atburðadagatal

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Næstu atburðir

Svipmyndir

Vefumsjón