A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Hlutverk félagslegrar ráðgjafar

| 19. mars 2012
Markmið með félagslegri ráðgjöf er að veita upplýsinga og ráðgjöf um viðeigandi stuðning og úrlausnir mála. Félagsmálastjóri annast félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna. Komið er til móts við einstaklingsbundnar þarfir þeirra sem sem þangað leita. Markmið félagslegrar ráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar til að allir geti notið sín sem best í samfélaginu og fengið úrlausn sinna þarfa. Félagsleg ráðgjöf felur í sér til að mynda ráðgjöf vegna:
  • veikinda
  • vanlíðunar
  • atvinnuleysis
  • húsnæðisleysis
  • fjárhagsvanda
  • fötlunar
  • málefna barna og unglinga,
  • öldrunar
  • fjölskylduvanda og áfengis eða fíknivanda.

Félagsmálastjóri tekur ekki fólk í sálfræðimeðferðir en hægt er að fá stuðningsviðtöl til að létta á sér vegna erfiðleika sem steðja að einstaklingum eða fjölskyldum hverju sinni. Félagsmálastjóri veitir upplýsingar um möguleika á þjónustu og úrræðum sem hentar hverjum vanda fyrir sig. Fullum trúnaði er gætt við vinnslu einstakra mála.

Þjónustan er íbúum Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Reykhólahrepps og Strandabyggðar að kostnaðarlausu og hægt er að panta tíma hjá félagsmálastjóra í síma 451-3510 eða í 842-2511.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón