A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fróðlegur fyrirlestur um einelti og forvarnir

| 19. nóvember 2012
Æskulýðsvettvangurinn heimsækir Strandabyggð næsta fimmtudag, þann 22. nóvember, með fyrirlestur um einelti, forvarnir og úrvinnslu eineltismála. Fyrirlesturinn fer fram kl. 16:30-18:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík. Það er Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur sem flytur fyrirlesturinn, en hann er byggður á nýútkominni bók hennar Ekki meir, sem er leiðarvísir í aðgerðum gegn einelti fyrir starfsfólk skóla, íþrótta- og æskulýðsfélög, foreldra og börn. Allir eru velkomnir á fyrirlesturinn - léttar kaffiveitingar verða í boði.

Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, KFUM og KFUK á Íslandi, Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Tilgangurinn með fyrirlestrinum er að vekja athygli á þessum málaflokki, opna betur augu starfsfólks og sjálfboðaliða fyrir því að vera vakandi og ávallt á verði gagnvart einelti og annarri óæskilegri hegðun. Á fyrirlestrinum verður aðgerðaáætlun Æskulýðsvettvangsins gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun dreift sem og eineltis plakati og nýútkomnum siðareglum Æskulýðsvettvangsins.

Hér má fræðast nánar um Æskulýðsvettvanginn.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón