A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fræðsluerindi fyrir foreldra leikskóla og grunnskólabarna í dag föstudaginn 21. ágúst klukkan 16:00

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 21. ágúst 2015
Fræðsluerindi fyrir foreldra um uppbyggingu sterkrar sjálfsmyndar hjá börnum á leikskóla og grunnskólastigi verður haldið í Félagsheimilinu á Hólmavík föstudaginn 21. ágúst klukkan 16:00.  Anna Sigríður Jökulsdóttir sálfræðingur hjá Sálfræðisetrinu og einn aðstandenda vefsíðunnar sjalfsmynd.com flytur erindi fyrir foreldra.  Hún fjallar um hvað einkennir sterka sjálfsmynd, hverjir eru grundvallarþættir sjálfsmyndar og hvernig má hafa áhrif á þá þætti. Einnig hvernig vinna má að því að börnin okkar virki vel í leik og starfi, líði vel í eigin skinni og meti sig og aðra í sanngjörnu ljósi. Sjálfsmynd er veigamikill þáttur í andlegri líðan og hefur áhrif á hvernig við hugsum, tölum og hegðum okkur. Sterk sjálfsmynd er eitt besta veganesti sem við getum gefið börnunum okkar út í lífið. Námskeið fyrir starfsfólk leik- og grunnskólana á Hólmavík, Finnbogastöðum, Drangsnesi og Reykhólum er fyrr um daginn. Mætum öll!

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón