A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Flugslysaæfing á Gjögri

| 07. október 2011
Í dag og á morgun, laugardaginn, 8. október, verður haldin flugslysaæfing á flugvellinum á Gjögri, norður á Ströndum, þar sem æfð verða viðbrögð við flugslysi við flugvöllinn samkvæmt tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Þegar slíkar æfingar eru haldnar er verið að láta reyna á samvinnu allra viðbragðseininga á svæðinu.

Aðstæður á Gjögri eru þannig að þar eru ekki til staðar nema hluti hinna hefðbundnu viðbragðsaðila eins og lögregla, slökkvilið, björgunarsveitir, Rauði krossinn og heilbrigðisstarfsmenn.

Verði stóráfall á Gjögri er gert ráð fyrir að aðstoð berist frá nærliggjandi svæðum, en þangað til sú aðstoð berst reynir á heimamenn.

Öll heimili á svæðinu fá boð og eru almennir íbúar kallaðir á staðinn auk þess sem björgunarsveitin Strandasól er virkjuð.

Við undirbúning æfingarinnar er lögð áhersla á að sem flestir geti nýtt sér þá fræðslu sem í boði er en að mestu er um að ræða verklegar æfingar t.d. skipulag á slysavettvangi, umönnun og bráðaflokkun slasaðra, aðkomu að flugslysi, slökkvistörf og björgun að því er greinir frá í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Fræðslan er í höndum ráðgjafa frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Isavia, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Landspítalanum og slökkviliði Akureyra.

Frétt af www.visir.is.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón