A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fjölgun starfa í leikskólanum Lækjarbrekku

| 29. nóvember 2011
Tvær 100% stöður í leikskólanum Lækjarbrekku
Vegna fjölgunar nemenda auglýsir leikskólinn Lækjarbrekka tvær tímabundnar stöður leikskólakennara/leiðbeinenda lausar til umsóknar. Um er að ræða tvær 100% stöður með vinnutíma frá kl. 08:00-16:00. Annars vegar leitum við eftir starfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst. Hins vegar leitum við eftir starfsmanni sem gæti hafið störf 1. febrúar 2012. Bæði störf eru tímabundin fram á vorið.


Matráður og ræstitæknir 

Við auglýsum einnig eftir starfsmanni í starf matráðs og ræstitæknis. Um er að ræða 100% starf frá kl. 08:00-16:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun janúar 2012.


Afleysingarstarf

Þá auglýsir leikskólinn Lækjarbrekka eftir starfsmanni til að sinna afleysingarstörfum við skólann.

 

Hæfniskröfur
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur.

 

Nánari starfslýsingar og upplýsingar um auglýst störf er hægt að nálgast hjá leikskólastjóra, Ingibjörgu Ölmu Benjamínsdóttur, á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst til leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@holmavik.is

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum ásamt ferilskrá og meðmælendum á leikskólann Lækjarbrekku að Brunngötu 2, 510 Hólmavík fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 9. desember  2011. Einnig er hægt að senda umsóknir til leikskólastjóra í tölvupósti. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

 

 

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón