A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fjarvera sveitarstjóra næstu vikur

| 11. desember 2014

Ágætu íbúar Strandabyggðar.

 

Ég vil upplýsa ykkur um það að ég verð í veikindaleyfi frá og með 12. desember. Taka þarf úr mér legið vegna hnúta sem hafa fundist í því, allt góðkynja þó, og mun ég fara í aðgerð næstkomandi föstudag (á morgun ef veðurguðir leyfa). Í kjölfarið þarf ég að hafa hægt um mig í allt að 6 vikur og ætla Jói og börnin að hjúkra mér vel og töfra fram jólin í Mosfellsbænum að þessu sinni. Jón Gísli og Salbjörg munu sinna öllum brýnum verkefnum sveitarstjóra í fjarveru minni en svo tek ég upp þráðinn þegar ég mæti galvösk til vinnu á nýju ári.

 

Ég óska ykkur öllum notalegrar aðventu og vona að þið hafið það sem allra best um hátíðarnar.

 

Bestur kveðjur,

Andrea

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón