A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fjárhagsáætlun Strandabyggðar 2011

| 24. janúar 2011

Lagt hefur verið fram frumvarp að fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2011 og er áætluð rekstrarniðurstaða neikvæð um rúmar 15 milljónir króna. Frumvarpið endurspeglar harðnandi rekstrarumhverfi og lækkandi tekjur sveitarfélagsins. Munar þar mestu um lækkandi framlög Jöfnunarsjóðs. 

Þrátt fyrir þetta leggur sveitarfélagið Strandabyggð áherslu á þróun og uppbyggingu á þeirri þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á til eflingar lífsgæða íbúa Strandabyggðar. Þannig vill sveitarfélagið standa vörð um grunnþjónustu og blómlegt mannlíf.

Samanlagðar tekjur A- og B- hluta sjóða sveitarfélagsins eru áætlaðar 360.683.000 kr. Samanlögð gjöld A- og B- hluta sjóða sveitarfélagsins eru áætluð 350.688.000 kr. Þegar aðalsjóður og B-hluta sjóðir sveitarfélagsins eru teknir saman í samstæðureikning er því gert ráð fyrir tæpum 10 milljónum í hagnað. Þegar fjármagnsgjöld eru dregin frá er rekstrarniðurstaðan hins vegar áætluð -15.190.000 kr.

Unnið verður að frekari hagræðingu í rekstri allra stofnana sveitarfélagsins fram á vor, en samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að endurskoðun fjárhagsáætlunar fari fram þá. 

Greinargerð, sjá hér.
Áætlaður rekstrarreikningur, sjá hér.
Áætlaður efnahagsreikningur, sjá hér.
Áætlað sjóðsstreymi, sjá hér.
Áætlað rekstraryfirlit, sjá hér.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón