A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Dagskrá Hörmungardaga

| 11. febrúar 2014
Þessi eru spennt yfir dagskrá Hörmungardaga
Þessi eru spennt yfir dagskrá Hörmungardaga

Nú er dagskráin loksins orðin opinber og er á leiðinni heim til íbúa Strandabyggðar og nærsveita. Hún er að sjálfsögðu ótrúlega spennandi og fjölbreytt. Fylgist með nánari fréttum af viðburðum næstu daga.

Föstudagurinn 14. febrúar

 

12:00-13:30   Flóttamannabúðir í Grunnskólanum á Hólmavík

 

12:40-13:20   Ljótudans í Hnyðju – DJ Sal

 

13:30-14:00   Kvörtunarþjónusta sveitarfélagsins í Hnyðju - knús í boði.

 

14:00-16:00   Sýningin Allt á kafi! í Hnyðju. Aðgangur ókeypis. Þjóðfræðistofa safnar frásögnum.

 

19:00-22:00   Morðgáta og hátíðarkvöldverður á Sauðfjársetrinu. Takmarkað sætaframboð, pantanir s. 823-3324. Aðgangseyrir 6000 kr.

 

22:00            Sjálfsvorkunnarnámskeið og tónleikar með Svavari Knúti á Kaffi Galdri. Aðgangseyrir 1500 kr.

 


Laugardaguinn 15. febrúar

 

11:00-13:00   Brunch á Café Riis.

 

11:00-14:00   Sýningin Allt á kafi! í Hnyðju. Aðgangur ókeypis. Þjóðfræðistofa safnar frásögnum.

 

12:00-14:00   Opið á bókasafninu. Hörmulegar bækur og upplestur.

 

12:00-15:00   Ljóðagjörningur, ljótuljóðakeppni, internetspá, opið hús og vont kaffi á Kaffi Galdri.

 

14:00            Sorgarljóð í Hólmavíkurkirkju. Kennarar tónskólans standa fyrir tónleikum í samstarfi við nemendur úr unglingadeild og kirkjukórinn. Fjölbreytt tónlist frá hinum ýmsu tímabilum, m.a. verður leikið á selló, langspil, trompet, tölvur og flauelshorn auk söngs. Aðgangur er ókeypis en tekið verður við frjálsum framlögum í hljóðfærasjóð skólans.

 

16:00            Nöldurkaffi í boði Fýlustrumps í Félagsheimilinu. Danmerkursjóðurinn sér um veitingasölu.

 

16:40            Hinn hörmulegi og einkar tragíski leikspuni Leikfélags Hólmavíkur um ástarævintýri og sérstaklega sviplegan dauðdaga Rómeó og Júlíu. Félagsheimilinu, frítt inn.

 

17:00-20:00   For-heimsenda ljóðasýning á Kaffi Galdri. Frítt inn.

 

19:00            Eurovision hörmung á Café Riis. Frítt inn.
                            Pizzur, djúpsteiktar rækjur og Eurovision á tjaldi
                            Hörmungar pubquiz með Dagrúnu Ósk Jónsdóttur og Jóni Jónssyni
                            Hemúllinn
                           Júródiskó með DJ Adda

Sunnudagurinn 16. febrúar

 

12:00            Reiðilosunarratleikur fyrir alla fjölskylduna með Esther Ösp hefst í Hnyðju.

 

12:00-15:00   Opið á sýningunni Allt á kafi! í Hnyðju. Aðgangur ókeypis.

 

15:00            Sögustund á Sauðfjársetrinu á Sævangi. Jón Jónsson segir frá drengjunum í gilinu og fleiri sorgaratburðum á Ströndum. Kaffihlaðborð á 1500 kr. fyrir fullorðna og 800 kr. fyrir 6-12 ára börn.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón