A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Covid 19 - staðan í Strandabyggð 19. nóv.

| 19. nóvember 2021
Greinst hafa fleiri staðfest Covid-19 smit á Hólmavík og grunnskólanum, leikskólanum og tónlistarskólanum hefur verið lokað fram yfir helgi. Sama gildir um félagsmiðstöðina Ozon og æfingar ungmennafélagsins Geislans. Í heildina hafa greinst eitt smit hjá starfsmanni, tvö smit hjá nemendum í grunnskóla og hjá einum nemanda í leikskóla. Nemendur á miðstigi grunnskóla og eldri deild leikskóla fara í sóttkví og eftir atvikum og tengslum aðrir og allt útsett starfsfólk. Nemendur á yngsta stigi, unglingastigi og yngri deild leikskóla fara í smitgát. Útsett starfsfólk leikskóla fer líka í sóttkví en aðrir í smitgát. Smitrakning stendur yfir og unnið með smitvarnateymi og Almannavörnum. Ákvarðanir um lokanir eru og hafa verið í samræmi við ráðleggingar sóttvarnayfirvalda. 

Strandabyggð vill hvetja fólk til að fara að öllu með gát og sinna persónulegum sóttvörnum. Jafnframt er mikilvægt að við höldum ró okkar og ræðum við yngri kynslóðina og úrskýrum málin. Helstu ráðin til íbúa eru að muna eftir handþvotti, sprittnotkun og að halda fjarlægð við aðra. Notum grímu þar sem ekki er hægt að virða nándarmörk. Pössum að þrífa algenga snertifleti og ef við þurfum að hósta, gerum það í olnbogabót eða einnota klút/pappír.

Ef fólk finnur fyrir einkennum eða hefur grun um smit, er mjög mikilvægt að hringja eða hafa samband, en ekki mæta á heilsugæslustöðina. Hægt er að hafa samband við heilsugæsluna á Hólmavík (sími: 432-1400), Læknavaktina (sími: 1700) eða á netspjalli Heilsuveru, jafnvel þó viðkomandi sé bólusettur. Einkenni geta verið: Hósti, hiti, hálssærindi, kvefeinkenni, andþyngsli, bein- og vöðvaverkir, þreyta, kviðverkir, niðurgangur, uppköst, skyndilegt tap á lyktar- og bragðskyni, höfuðverkur.

Upplýsingasíða Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er á slóðinni: 
www.covid.is Þar má m.a. finna gagnlegar upplýsingar um sýnatöku, sóttkví, smitgát, einangrun, einkenni og almenna líðan

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón