A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Baráttudagur gegn einelti í næstu viku

| 02. nóvember 2012
Fimmtudagurinn 8. nóvember nk. er baráttudagur gegn einelti hér á landi. Þá er þjóðin hvött til að standa saman gegn einelti í samfélaginu; samtök og vinnustaðir eru hvattir til að beina sjónum að jákvæðum samskiptum, jákvæðum skólabrag og góðum starfsanda. Í tengslum við daginn eru sem allra flestir hvattir til að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti sem er aðgengilegur á heimasíðunni gegneinelti.is. Grunnskólinn á Hólmavík hefur þegar ákveðið að taka þátt í deginum með áberandi hætti sem nánar verður skýrt frá í næstu viku. Strandabyggð hvetur fyrirtæki, samtök og stofnanir í sveitarfélaginu til að taka virkan þátt í deginum.


Þjóðarsáttmáli gegn einelti
„Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og einnig allra hópa sem ekki eiga sér málsvara eða sterka rödd. Við munum öll hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til þess að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til þess að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er."

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón