A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna

| 05. júní 2014
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar auglýsir eftir tilnefningum til Menningarverðlauna Strandabyggðar, en þau verða veitt á Hamingjudögum.

Þetta er í fimmta skiptið sem verðlaunin og verðlaunagripurinn Lóan eftir Hafþór Ragnar Þórhallsson verða veitt, en áður hafa Grunnskólinn á Hólmavík, Þjóðfræðistofa á Ströndum, Einar Hákonarson listamaður og Sauðfjársetur á Ströndum  hlotið þau. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári.


Tilnefningum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is til miðnættis sunnudaginn 15. júní. Tómstunda-, íþrótta- og menningarmálanefnd skipar dómnefnd sem velur úr innsendum tillögum

Gerðar hafa verið starfsreglur um Menningarverðlaunin sem eru eftirfarandi:

1) Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar, eru veitt árlega til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektarvert framtak á sviði lista og menningar í sveitarfélaginu á liðnu ári. Markmiðið með verðlaununum er að vera almenn hvatning til eflingar menningar- og listastarfs í Strandabyggð. Verðlaunin eru afhent við hátíðlega athöfn á Hamingjudögum á Hólmavík ár hvert.

2) Ákvörðun um handhafa verðlaunanna er tekin af Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar að fengnum tilnefningum. Auglýst skal eftir tilnefningum frá íbúum Strandabyggðar í maí eða júní ár hvert. Tilnefningum skal komið til menningarmálanefndar í gegnum tölvupóst eða með öðrum leiðum fyrir ákveðin tíma. Nefndin ákveður tímamörk og hvaða leiðir skulu hafðar við að taka á móti tilnefningum. Nefndin er ekki bundin af tilnefningum í ákvörðun sinni um verðlaunahafa.

3) Verðlaunahafi fær afhent viðurkenningarskjal undirritað af Menningarmálanefnd, verðlaunagrip og einnig minni verðlaunagrip til minningar um útnefninguna.

4) Veita má fleiri en ein verðlaun hverju sinni, telji Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd að fleiri en einn aðili hafi skarað fram úr og þannig verðskuldað verðlaunin það ár. Nefndin ákveður hvort um tvenn eða fleiri aðalverðlaun er að ræða eða ein aðalverðlaun og ein eða fleiri aukaverðlaun. 

5) Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd kemur fréttum um útnefninguna og menningarstarf verðlaunahafans á framfæri í eins mörgum fjölmiðlum og kostur er.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón