A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Afleysingastarf við Leikskólann Lækjarbrekku

| 27. janúar 2014

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennurum eða leiðbeinendum til afleysinga á vormánuðum 2014. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir duglegum og samviskusömum starfskrafti sem hefur gaman af vinnu með börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið leikskolastjori@strandabyggd.is. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 3 febrúar 2014. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón