A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

31. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps - 7. desember 2016

31. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps haldinn 7. desember 2016 kl. 16:00 að Höfðagötu 3 á Hólmavík. Mætt voru: Ingibjörg Emilsdóttir (Strandabyggð), Unnsteinn Árnason (Strandabyggð), Jenny Jensdóttir (Kaldrananeshreppi), Áslaug Guttormsdóttir (Reykhólahreppi) og Oddný G. Þórðardóttir (Árneshreppi) sem var í síma og María Játvarðardóttir félagsmálastjóri sem stjórnaði fundinum og ritaði fundargerð.

 Dagskrá:

  1. 1.       Umsóknir um heimaþjónustu

Sótt er um heimaþjónustu í Strandabyggð

Samþykkt frá 1. nóvember 2016 og fært í trúnaðarbók

 

Sótt er um heimaþjónustu í Strandabyggð

Samþykkt frá 1. október 2016 og fært í trúnaðarbók

 

  1. 2.       Umsókn um fjárhagsaðstoð

Sótt er um fjárhagsaðstoð í Reykhólahreppi. Samþykkt að veita fjárhagsaðstoð í nóvember og desember en jafnframt veita ráðgjöf og athuga með aðstoð frá VIRK á Ísafirði.

Önnur mál

 

 Þjónustusamningar

Sum sveitarfélög hafa gert þjónustusamninga við fatlað fólk eða foreldra fatlaðra barna. Þá er reiknað út nákvæmlega hver kostnaður er af þjónustu og viðkomandi aðili fær þá upphæð greidda mánaðarlega og má ráða sér sjálfur starfsfólk og greiða út. Ein fjölskylda á svæðinu hefur rætt þetta mál við félagsmálastjóra og sækist eftir að gerðir verði þjónustusamningar við hana. Málið hefur enn ekki verið rætt við BsVest og vildi félagsmálastjóri kynna þessa hugmynd fyrir velferðarnefndinni.

Þroskahjálp

Bryndís Snæbjörnsdóttir formaður Þroskahjálpar var með kynningarfund á Hólmavík í október. Fundurinn var auglýstur á Ströndum, Reykhólahreppi og í Dölum. Síðan var María Játvarðardóttir, félagsmálastjóri með erindi á 40 ára afmælisráðstefnu Þroskahjálpar á Grand Hotel í Reykjavík 2. desember og nefndist erindið:  Að hugsa í lausnum. Gaf hún þar nokkurt yfirlit yfir þróun þjónustu við fatlað fólk á svæðinu og hvernig leitast er við að finna lausnir sem henta íbúunum.

Öldungaráð

María félagsmálastjóri sagði frá því að Öldungaráð hefur verið stofnað í Reykhólahreppi og Dölum. Ráðið er skipað fulltrúum frá Félagi eldri borgara, fulltrúum frá sveitarstjórn og félagsmálastjóra/félagsráðgjöfum í félagsþjónustu. Tilgangur ráðsins er að gefa eldri borgurum kost á að hafa áhrif á þróun mála sem snerta eldri borgara hjá sveitarfélögum. Fyrir Alþingi liggur tillaga þess efnis að Öldungaráð verði skipað í hverju sveitarfélagi. Skoða má þann möguleika að Strandir taki þátt í því Öldungaráði eða stofni sitt eigið.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00

 

_______________________________                                           _____________________________________

Ingibjörg Emilsdóttir                                                                     Unnsteinn Árnason

 

 

________________________________                                        ____________________________________

Jenny Jensdóttir                                                                            Áslaug Berta Guttormsdóttir

 

 

_________________________________

Oddný G. Þórðardóttir

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón