A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórn Strandabyggðar 1202 - 13. nóvember 2012

Fundur nr. 1202 var haldinn í sveitarstjórn Strandabyggðar þriðjudaginn 13. nóvember 2012 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson oddviti sveitarstjórnar, bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Einnig sátu fundinn Jón Jónsson varaoddviti, Ásta Þórisdóttir, Bryndís Sveinsdóttir og Viðar Guðmundsson. Andrea Kristín Jónsdóttir sveitarstjóri ritaði fundargerð. 

 

 

Dagskrá:

1. Viðauki við fjárhagsáætlun – útgönguspá 2012

2. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013, fyrri umræða.

3. Erindi frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu varðandi umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013, dagsett 19/10/2012

4. Erindi frá Ástþóri Ágústssyni, ósk um meðmæli sveitarstjórnar með kaupum á Múla í Strandabyggð, dagsett 30/10/2012

5. Erindi frá Búnaðarsambandi Strandamanna (BSS) dagsett 05/11/2012

6. Tillaga frá menningarfulltrúa um að hefja undirbúningsvinnu vegna héraðsskjalasafns fyrir Strandir, dagsett 05/11/2012

7. Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi, dagsett 02/11/2012

8. Erindi frá Sævari Benediktssyni f.h. varðandi bílastæði fyrir Finna Hotel ehf, dagsett 07/11/2012

9. Erindi frá Landssambandi hestamanna varðandi skráiningu reiðleiða – kortasjá, dagsett 03/10/2012

10. Erindi frá SÁÁ vegna verkefnisins Betra líf! – mannúð og réttlæti, dagsett 17/10/2012

11. Erindi frá Súðarvíkurhreppi varðar reikning vegna slökkvistarfa í Laugardal, dagsett 18/10/2012

12. Erindi frá stjórn Snorrasjóðs, ósk um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2013, dagsett 08/11/2012

13. Erindi frá frá Jóni Jónssyni, sveitarstjórnarmanni, ákvarðanir varðandi gamla vatnstankinn á Hólmavík, dagsett 08/11/2012

14. Ársreikningur Sorpsamlags Strandasýslu vegna 2011

15. Fundargerð Fræðslunefndar

16. Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar

 

Þá var gengið til dagskrár.
 

1. Viðauki við fjárhagsáætlun – útgönguspá 2012
Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2012 samþykkt samhljóða.

2. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013, fyrri umræða
Sveitarstjórn samþykkir að útsvarsprósenta árið 2013 verði 14.48%. Fjárhagsáætlun Strandabyggðar fyrir árið 2013 vísað til síðari umræðu.

3. Erindi frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu varðandi umsókn um byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013, dagsett 19/10/2012
Sveitarstjórn Strandabyggðar óskar eftir að viðbótarreglur verði settar vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiárið 2012/2013.

Sveitarstjórn Strandabyggðar leggur til eftirfarandi breytingu á 4. grein reglugerðar 628/2012:

- Helmingi úthlutaðs byggðakvóta verði skipt jafnt á milli fiskiskipa

- Helmingi úthlutaðs byggðakvóta verði skipt eftir lönduðum afla síðasta fiskveiðiárs, 2011/2012
 

Sveitarstjórn Strandabyggðar leggur til eftirfarandi breytingar á 6. grein reglugerðar 628/2012:

- Vinnsluskylda samkvæmt 6. gr. reglugerðar nr. 628/2012 verði felld  niður.

- Fallið verði frá skilyrði um tvöföldun löndunarskyldu þess aflamarks sem fiskiskip fá úthlutað samkvæmt 6. gr. reglugerðar.
 

4. Erindi frá Ástþóri Ágústssyni, ósk um meðmæli sveitarstjórnar með kaupum á Múla í Strandabyggð, dagsett 30/10/2012
Sveitarstjórn frestar afgreiðslu erindis til næsta fundar meðan aflað er frekari upplýsinga.

5. Erindi frá Búnaðarsambandi Strandamanna (BSS) dagsett 05/11/2012
Jón Gísli Jónsson og Jón Jónsson víkja af fundi og Ingibjörg Benediktsdóttir og Þorsteinn Newton komu inn í þeirra stað.

Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og leggur til að haldinn verði fundur með hlutaðeigandi sveitarfélögum og öðrum er málinu tengjast. Sveitarstjórn telur mikilvægt að mál þetta verði til lykta leitt.

Jón Gísli Jónsson og Jón Jónsson koma aftur á fund og Ingibjörg Benediktsdóttir og Þorsteinn Newton yfirgefa fundinn.

6. Tillaga frá menningarfulltrúa um að hefja undirbúningsvinnu vegna héraðsskjalasafns fyrir Strandir, dagsett 05/11/2012
Sveitarstjórn samþykkir erindið og vísar því áfram til fjárhagsáætlunargerðar.

7. Umsókn um styrk vegna starfsemi Landsbyggðin lifi, dagsett 02/11/2012
Sveitarstjórn hafnar erindinu.

8. Erindi frá Sævari Benediktssyni f.h. varðandi bílastæði fyrir Finna Hotel ehf, dagsett 07/11/2012 
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið, samþykkir að ljúka hönnun götunnar og bílastæða og ganga til viðræðna við Finna Hotel.

9. Erindi frá Landssambandi hestamanna varðandi skráningu reiðleiða – kortasjá, dagsett 03/10/2012
Sveitarstjórn hafnar erindinu.

10. Erindi frá SÁÁ vegna verkefnisins Betra líf! – mannúð og réttlæti, dagsett 17/10/2012
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og lýsir yfir stuðningi við átakið Betra líf, mannúð & réttlæti.

11. Erindi frá Súðarvíkurhreppi varðar reikning vegna slökkvistarfa í Laugardal, dagsett 18/10/2012
Sveitarstjórn samþykkir að veitar 15% afslátt af reikningum vegna slökkvistarfa í Laugardal, Súðarvíkurhreppi.


12. Erindi frá stjórn Snorrasjóðs, ósk um stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2013, dagsett 08/11/2012
Sveitarstjórn hafnar erindinu.

13. Erindi frá frá Jóni Jónssyni, sveitarstjórnarmanni, ákvarðanir varðandi gamla vatnstankinn á Hólmavík, dagsett 08/11/2012
Sveitarstjórn samþykkir erindið.

14. Ársreikningur Sorpsamlags Strandasýslu vegna 2011
Erindi lagt fram til kynningar.

15. Fundargerð Fræðslunefndar
Sveitarstjórn tekur undir með fræðslunefnd  og býður Huldu Ingibjörgu velkomna til starfa og þakkar Hildi Guðjónsdóttur fráfarandi skólastjóra vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.


Sveitarstjórn samþykkir fundargerð samhljóða.

 

16. Fundargerð Umhverfis- og skipulagsnefndar
Sveitarstjórn samþykkir liði 1, 4 og 6a.
Sveitarstjórn samþykkir fundargerð samhljóða að öðru leiti.


Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 19:35.


Jón Gísli Jónsson
Jón Jónsson
Bryndís Sveinsdóttir
Ásta Þórisdóttir
Viðar Guðmundsson 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón