A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfis- og skipulagsnefnd, 7. október 2019

Fundargerð

 

Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn 7.okt. 2019,  kl. 17:00  í Hnyðju að Höfðagötu 3.

Fundinn sátu:  Aðalbjörg S. Sigurvaldadóttir, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Ágúst Helgi Sigurðsson, Hafdís Sturlaugsdóttir og Grettir Örn Ásmundsson byggingafulltrúi og ritaði hann einnig fundargerð.

 

Dagskrá fundarins var eftirfarandi:


1.    
Kirkjuból í Langadal- umsókn um lóð.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að erindið verði samþykkt af sveitastjórn.


2.    
Kálfanes, framkvæmdir.

Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum sem innihalda málsettar teikningar og staðsetningu rotþróar.


3. Nauteyri, gestahús.

Umhverfis- og skipulagsnefnd óskar eftir frekari gögnum sem innihalda staðsetningu og málsettar teikningar.


4. Skeljavík lóð 7, breyting á skráningu.

Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að húsið á lóð 7 uppfylli skilyrði íbúðarhúsnæðis. Erindinu vísað til sveitastjórnar.


5. Önnur mál


a) Brekkusel, stöðuleyfi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitastjórn veiti stöðuleyfi til eins árs en bendir á að geymslusvæði fyrir gáma sé þegar til staðar í Réttarvík.


b) Fjárhagsáætlun á sviði nefndarinnar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að formaður nefndarinnar leggi fram lista á næsta fundi af verkefnum sem heyra undir nefndina.


c) Lækjartún, grenndarkynning.

Ekki komu neinar athugasemdir fram í grenndarkynningu vegna fyrirhugaðar framkvæmdar í Lækjartúni 9. Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að sveitastjórn samþykki stækkun lóðar og byggingareits.

 

            Fundi slitið kl 18:30.

 

 

 

 

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón