A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfis- og skipulagsnefnd - 4. apríl 2018

Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar  miðvikudaginn 4. apríl  2018,  kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundinn sátu:  Jón Gísli Jónsson formaður,  Hafdís Sturlaugsdóttir, Ingimundur Jóhannsson, Már Ólafsson, Jóhann Björn Arngrímsson, Einar Indriðason slökkviliðsstjóri og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

 

Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:

 

  1. Steinshús
    Beiðni frá Sýslumanninum á Vestfjörðum um umsögn um umsókn Þórdunu ehf. kt. 570589-1059, um leyfi til að reka gististað í flokki II (gististaður án veitinga) í Steinshúsi að Nauteyri á Langadalsströnd.
    Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
     
  2. Fell
    Fyrirspurn frá Tjalling Willem Bos, eiganda jarðarinnar Fells, um hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við nýtt skógræktarsvæði á Felli eða hvort sækja þurfi um framkvæmdaleyfi.
    Afgreiðslu erindisins frestað. Óskað er eftir að umsækjandi leggi fram frekari upplýsingar um hugsanlegar fornminjar á fyrirhuguðu skógræktarsvæði.

  3. Breytingar á aðalskipulagi
    Lagður fram uppdráttur vegna óverulegra breytinga á aðalskipulagi Strandabyggðar 2010 – 2022.  Breytingar eru í samræmi við bókanir umhverfis- og skipulagsnefndar á fundi þann 7. febrúar s.l. varðandi Hafnarbraut 17 og Fiskislóð 1.
    Í samræmi við bókanir umhverfis- og skipulagsnefndar á fundi sínum þann 7. febrúar s.l., liðir 3 og 5, leggur nefndin til við sveitarstjórn að samþykkja óveruleg breytingu á aðalskipulagi, samkvæmt 2. mgr. 36 greinar skipulagslaga, í samræmi við skipulagsuppdrátt dagsettum 15. mars 2018.
    Breytingarnar eru þær að annarsvegar er nýr reitur, verslunar- og þjónustu-svæði, skilgreindur fyrir lóðin að Hafnarbraut 17 og hinsvegar er nýr reitur, athafnasvæði, skilgreindur fyrir lóðina að Fiskislóð 1. 
     
  4. Virkjun vindorku
    Lagt fram nýtt rit Landverndar, „Virkjun vindorku á Íslandi“.
    Kynnt.
     
  5. Önnur mál
    a)      Borgabraut 37
    Fyrirspurn frá Þorkeli Jóhannssyni um hvort heimilt verði að snúa mænisstefnu frístundahúss sem þau hyggjast reisa á lóðinni þannig að hún verði þvert á þá mænisstefnu sem fram kemur á deiliskipulagi.
    Ingimundur Jóhannsson víkur af fundi við afgreiðslu þessa erindis.
    Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ekki fallist á að mænisstefnu fyrirhugaðs húss verði breytt.

    b)     Flugstöð
    Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að vegurinn að Flugstöðinni og sumarhúsum í Kálfanesi fá heitið Kálfanesbraut.  Flugstöðvarhúsið stendur þá við Kálfanesbraut 2.

    c)      Hreinsunarátak
    Rætt um nauðsyn þess að skipuleggja hreinsunarátak í sveitarfélaginu.  Ákveðið að ræða það frekar á næsta fundi.

 

 

Jón Gísli Jónsson

Hafdís Sturlaugsdóttir

Ingimundur Jóhannsson

Már Ólafsson

Jóhann Björn Arngrímsson

Einar Indriðason

Gísli Gunnlaugsson

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón