A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Staða deildarstarfsmanns

Salbjörg Engilbertsdóttir | 14. mars 2019

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni á deild í 100% stöðu. Leitað er eftir leikskólakennara, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að starfa með börnum. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

 

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum starfsmanni sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði og sjálfstæði í starfi góður kostur.

 

 

Umsóknarfrestur er til 25. mars 2019.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólastjóri, sími 451 3411,
netfang: leikskolastjori@strandabyggd.is

Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á leikskolastjori@strandabyggd.is eða leikskólann Lækjarbrekku, Brunngötu 2, 510 Hólmavík

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón