A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. maí 2022

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust starf í Áhaldahúsi Strandabyggðar a.m.k til 30. September n.k. með möguleika á framlengingu.


Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf þar sem Áhaldahús Strandabyggðar er með ábyrgð á eftirfarandi verkefnum:
- Vatnsveitu
- Fráveitu
- Umsjón og viðhaldi fasteigna
- Hólmavíkurhöfn
- Sorpsamlag 
- Umsjón með snjómokstri og söltun á Hólmavík
- Þjónusta stofnanir Strandabyggðar
- Fjölbreytt verkefni sem til falla


Menntunarkröfur
Kostur er að starfsmaður sé með eftirfarandi:
- Iðnmenntun
- Meirapróf ásamt auknum réttindum á krana og farmflutningaleyfi
- Vigtarréttindi


Leitað er eftir starfsmanni með ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni. Mikilvægt er að starfsmaður sé skipulagður og geti tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð.


Umsóknarfrestur er til og með 23. Maí nk og þarf umsækjandi að geta byrjað sem fyrst. Umsóknum ásamt ferilskrá ber að skila í netfangið strandabyggd@strandabyggd.is eða á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3. Hér má finna umsóknareyðublað.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Marinó Þorvaldsson verkstjóri Áhaldahúss Strandabyggðar í síma 8944806.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón