A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus störf á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 28. júní 2016

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir 100% stöðu deildarstjóra lausa til umsóknar. Leitað er eftir leikskólakennara, uppeldismenntuðu fólki eða fólki með reynslu af starfi með börnum. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst 2016.

 

Einnig auglýsum við eftir fólki með reynslu af börnum í starf deildarstarfsmanns. Annars vegar í 100% starf  með vinnutímann 8:00-16:00 og hins vegar í 50% starf með vinnutímann 12:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst 2016.

 

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði góður kostur.

 

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is 

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknafrestur er til 4. júlí 2016. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón