A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus störf

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. janúar 2021

Strandabyggð auglýsir laus störf í Grunnskólanum á Hólmavík og Leikskólanum Lækjarbrekku

  • Stuðningsfulltrúi, 100%. Vinnutími 8:00-16:00. Um er að ræða starf með nemanda/nemendum með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og Frístund. Í starfinu felst einnig gæsla í frímínútum.
  • Deildarstarfsmaður á leikskóla 50% Vinnutími 12:00-16:00. Leitað er eftir fólki með kennaramenntun, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum.

Áhersla er lögð á jákvæðni, sveigjanleika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áreiðanleiki og frumkvæði eru góðir kostir.

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að fara á milli leik- og grunnskóla og þurfa að geta hafið störf sem allra fyrst.

Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2021.

Nánari upplýsingar gefur Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri sími 451 3430, skolastjori@strandabyggd.is

Umsóknir ásamt starfsferilskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á netfangið: skolastjori@strandabyggd.is

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón