A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd - 7. apríl 2016

Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar  fimmtudaginn 7. apríl,  kl. 20:00 að Höfðagötu 3. Fundinn sátu: Ásta Þórisdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir og Jóhanna Rósmundsdóttir. Júlíana Ágústsdóttir og Júlíus Jónsson boðaði forföll. Íris Ósk Ingadóttir tómstundafulltrúi sat einnig fundinn og ritaði fundargerð. Heiðrún Helga Hjörleifsdóttir vettvangsnemi sat til áheyrnar.

 

Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:

 

  1. Barnamenningarhátíð Vestfjarða
  2. Hamingjudagar
  3. Önnur mál

 

Þá er gengið til dagskrár.

  1. Barnamenningarhátíð Vestfjarða
    Farið var yfir framkvæmd nýafstaðinnar barnamenningarhátiðar og er almenn ánægja með hvernig til tókst. Íris mun taka saman skýrslu um framkvæmd hátíðarinnar. Ákveðið var að hvetja Patreksfjörð að halda Barnamenningarhátíð Vestfjarða að ári.

  2. Hamingjudagar
    Heiðrún Helga vettvangsnemi kynnti drög að dagskrá Hamingjudaga en hún hefur unnið að því sem hluta af nemaverkefni sínu. Almennar umræður og hugarflug um hátíðina.
     
  3. Önnur mál
    Engin önnur mál á dagskrá.

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 21:43.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón