A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd - 27. júní 2016

Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar  mánudaginn 27. júní,  kl. 17:00 að Höfðagötu 3.

Fundinn sátu: Ásta Þórisdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir, Jóhanna Rósmundsdóttir og Júlíana Ágústsdóttir. Júlíus Jónsson boðaði forföll. Íris Ósk Ingadóttir tómstundafulltrúi sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.

 

Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:

 

  1. Menningarverðlaun Strandabyggðar
  2. Hamingjudagar
  3. Önnur mál

 

Þá er gengið til dagskrár.

 

  1. Menningarverðlaun Strandabyggðar
    1. Farið var yfir tilnefningar og ákveðið að veita Sauðfjársetri á Ströndum verðlaunin í ár og viðkenningu fyrir stofnun Náttúrubarnaskólans.
    2. Ákveðið var einnig að veita Sigríði Drífu og Birki í Tröllatungu sérstaklega viðurkenningu fyrir varðveislu menningarminja í kirkjugarðinum í Tröllatungu.
  2. Hamingjudagar
    1. Farið yfir dagskrá
  3. Önnur mál
    1. Rædd var staða erindisbréfs Ungmennaráðs sem verður lagt fyrir á fundi sveitarstjórnar í ágúst.
    2. Nefndin fagnar ákvörðun sveitarstjórnar að samþykkja erindi frá TÍM-nefnd um húsnæðismál Ozon og Skólaskjóls.

 

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið kl. 18:25.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón