A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd - 15. janúar 2013

Fundur var haldinn í Tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar þriðjudaginn 15. janúar kl. 19:30 í Hnyðju að Höfðagötu 3 á Hólmavík. Mætt voru Ásta Þórisdóttir formaður, Salbjörg Engilbertsdóttir, Júlíus Freyr Jónsson, Jóhann Lárus Jónsson og Barbara Guðbjartsdóttir varamaður. Arnar Jónsson tómstundafulltrúi sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.


1. Val á Íþróttamanni ársins 2012 í Strandabyggð

Lagðar voru fram tilnefningar sem borist höfðu um Íþróttamann ársins, en auglýst var eftir tilnefningum frá íbúum í Strandabyggð. Farið var yfir tilnefningarnar. Ákveðið að útnefna Ingibjörgu Emilsdóttur sem íþróttamann ársins í Strandabyggð árið 2012 og að Jamison Ólafur Johnson fengi hvatningarverðlaun Strandabyggðar fyrir árið 2012.


2. Val á fulltrúum í Ungmennaráð Strandabyggðar

Á síðasta fundi nefndarinnar var ákveðið að ræða við ákveðna einstaklinga um að taka þátt í starfi Ungmennaráðs. Þessir fulltrúar sitja í fyrsta ungmennaráði Strandabyggðar:


Aðalmenn:
Valdimar Friðrik Jónsson
Þorbjörg Matthíasdóttir
Jóhanna Rósmundsdóttir
Guðfinnur Ragnar Jóhannsson
Laufey Heiða Reynisdóttir


Varamenn:
Björk Ingvarsdóttir
Jóhann Helgi Alfreðsson
Benjamín Páll Gíslason
Brynja Karen Daníelsdóttir
Theódór Þórólfsson


3. Önnur mál

Ekkert annað tekið fyrir.


Fundi slitið kl. 19:50.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón