A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Menningarmálanefnd - 16. júní 2010

Fundur var haldinn í Menningarmálanefnd, miðvikudag 16. júní 2010, á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann klukkan 17.00.  Mætt voru: Rúna Stína Ásgrímsdóttir, Jón Halldórsson og Salbjörg Engilbertsdóttir sem ritaði fundargerð. Einnig mætti Kristín S. Einarsdóttir framkvæmdarstjóri Hamingjudaga og stjórnaði hún einnig fundi. 

 

Dagskrá fundarins:

 

1. Vinabæjarmót haustið 2010.

2. Hamingjudagar, dagskrá.

3. Önnur mál

 

1. Vinabæjarmót haustið 2010.  
Eins og áður hefur komið fram (sjá fundargerð frá 21. apríl 2010) hefur borist boð á vinabæjarmót í Tanum í Svíþjóð í september. Menningarmálanefnd langar að hvetja nýja sveitarstjórn til að taka ákvörðun sem fyrst, miðað við fyrri umræður nefndarinnar varðandi hvort senda eigi fulltrúa á mótið.


2. Hamingjudagar. 
Farið var yfir dagskrána varðandi tímasetningar og rætt ítarlega um hana. Er dagskráin að verða nokkuð tilbúin og aðeins örfá atriði sem eru ófrágengin.

 

3. Önnur mál.

Næsti fundur: Ákveðið að halda fund aftur fimmtudaginn 24. júní, klukkan 17:00.

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19.00.

 

Kristín Sigurrós Einarsdóttir (sign)   
Jón Halldórsson (sign)

Rúna Stína Ásgrímsdóttir (sign)       

Salbjörg Engilbertsdóttir (sign)

 

  
ATH: Fundargerðin var tekin fyrir á fundi sveitarstjórnar Strandabyggðar 29. júní 2010.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón