A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sveitarstjórn Strandabyggðar 1251 - 9. ágúst 2016

Fundur nr.  1251 í sveitarstjórn Strandabyggðar var haldinn þriðjudaginn 9. ágúst 2016 í Hnyðju, Höfðagötu 3. Fundurinn hófst kl. 16:00. Jón Gísli Jónsson (J) bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Auk Jóns Gísla sátu fundinn  Jóhann Lárus Jónsson (J) , Ingibjörg Emilsdóttir(J),  Ingibjörg Benediktsdóttir (E) og Haraldur V. A. Jónsson (F). Andrea K. Jónsdóttir sveitarstjóri  ritaði fundargerð. 

 

Fundardagskrá er því svohljóðandi:

 

  1. Boð á haustþing Fjórðungssambands Vestfirðinga 2. og 3. september 2016
  2. Drög að fjallskilaseðli fyrir 2016 lagður fram
  3. Erindi frá Súðavíkurhreppi, umsókn um skólavist
  4. Auglýsing frá Orkusjóði um styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla, 29/6/2016
  5. Afrit af bréfi frá Páli Arnóri Pálssyni til Skipulagsstofnunar frá 11/7/2016
  6. Skýrsla forstöðumanna og sveitarstjóra fyrir júní og júlí 2016
  7. Fundargerð NAVE frá 14/6/2016
  8. Fundargerð TÍM frá 27/6/2016
  9. Fundargerð US frá 8/8/2016

 

 

Þá var gengið til dagskrár.

 

  1. Boð á haustþing Fjórðungssambands Vestfirðinga 2. og 3. september 2016

    Allir fimm sveitarstjórnarmenn Strandabyggðar munu sækja haustþingið ásamt sveitarstjóra.

  2. Drög að fjallskilaseðli fyrir 2016 lagður fram

    Formanni Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefndar og sveitarstjóra er falið að fullvinna fjallskilaseðil og verður hann lagður fyrir Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd til samþykktar.

  3. Erindi frá Súðavíkurhreppi, umsókn um skólavist

    Erindi samþykkt samhljóða.

  4. Auglýsing frá Orkusjóði um styrki til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla, 29/6/2016

    Auglýsing lögð fram til kynningar.

  5. Afrit af bréfi frá Páli Arnóri Pálssyni til Skipulagsstofnunar frá 11/7/2016

    Bréf lagt fram til kynningar.

  6. Skýrsla forstöðumanna og sveitarstjóra fyrir júní og júlí 2016

    Skýrsla lögð fram til kynningar.

  7. Fundargerð NAVE frá 14/6/2016

    Fundargerð lögð fram til kynningar.

  8. Fundargerð TÍM frá 27/6/2016

    Fundargerð lögð fram til samþykktar og samþykkt samhljóða.

  9. Fundargerð US frá 8/8/2016

    Fundargerð lögð fram til samþykktar og samþykkt samhljóða.

 

 

Fundargerð yfirfarin og undirrituð og fundi slitið kl. 17:14

 

Ingibjörg Benediktsdóttir

Ingibjörg Emilsdóttir

Haraldur V. A. Jónsson

Jóhann Lárus Jónsson

Jón Gísli Jónsson

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón