A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Umhverfis- og skipulagsnefnd 5. júní 2013

Fundur var haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar miðvikudaginn

5. júní 2013, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Valgeir Örn Kristjánsson, Elfa Björk Bragadóttir og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:

  1. Tún í eigu Strandabyggðar.

Túnum sem eru í eigu Strandabyggðar úthlutað. Borist hafa umsóknir frá eftirtöldum aðilum.

a) Þórólfur Guðjónsson sækir um tún í Réttarvík eða við Skeljavíkurrétt.

b) Karl Víðir Jónsson og Heiða Jónsdóttir sækja um tún í Réttarvík eða annað tún.

Þar sem báðir umsækjendur sækja um túnið í Réttarvík var dregið milli þeirra og kemur það í hlut Karls Víðis Jónssonar og Heiðu Jónsdóttir. Þórólfi Guðjónssyni er úthlutað túni við Skeljavíkurrétt.

  1. Höfðagata 5.

Lagðar fram til kynningar teikningar af nýju 120 fermetra íbúðarhúsi á lóðinni við Höfðagötu 5 sem lóðareigandi hyggst reisa í stað þess húss sem eyðilagðist í eldi.

Samþykkt að senda tillöguteikningar af nýju húsi við Höfðagötu 5 í grenndarkynningu til húseigenda við Höfðagötu 2, 3, 3a, 7, 9, 11, 13, 15, 8-10 og Fiskislóð 1.

  1. Önnur mál.

a) Umsókn frá Björgunarsveitinni Dagrenningu þar sem óskað er eftir stöðuleyfi fyrir geymslugám vestan við tækjageymslu sveitarinnar.

Erindið samþykkt.

Jón Gísli Jónsson

Valgeir Örn Kristjánsson

Elfa Björk Bragadóttir

Gísli Gunnlaugsson

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón