A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Byggingar-, umferða- og skipulagsnefnd - 4. júní 2009

 

Fimmtudaginn 4. júní 2009 var haldinn fundur í byggingar-, umferðar- og skipulagsnefnd Strandabyggðar.  Fundurinn var haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins og hófst hann kl.20:00.  Mætt voru Jóhann L. Jónsson, Ingibjörg Emilsdóttir, Snorri Jónsson, Már Ólafsson varamaður og Þórólfur Guðjónsson.  Einnig sat fundinn Einar Indriðason slökkviliðsstjóri.  Fyrir fundinum lá eftirfarandi dagskrá.

 

 

 

            Fundarefni:

 

  • 1. Umsókn um lóð á Borgabraut
  • 2. Umsókn um lóð undir hjall í Skothúsvík.
  • 3. Önnur mál.

 

 

Þá var gengið til dagskrár.

 

  • 1. Umsókn um lóð á Borgabraut.

 

Umsókn Ingimundar Guðmundssonar samþykkt með þrem atkvæðum. Einn sat hjá. Einn greiddi atkvæði á móti.

 

  • 2. Umsókn um lóð undir hjall í Skothúsvík.

 

Umsækjanda vísað á skipulagt svæði undir hjalla í Réttarvík. Og leyfi veitt á skipulögðu svæði þar.

 

  • 3. Önnur mál.

 

Umsókn um stækkun á lóð við Kópnesbraut 3a.

Ræða þarf við umsækjanda um stækkunina vegna lagna í jörð og óánægju nágranna.

 

Nefndin vill að gámarnir á gámsvæðinu í Skothúsvík verði færðir saman og málaðir ruslagrænir á lit.

 

Rætt var um frágang eftir olíutankana. Það þarf að fara að ganga frá því svæði strax. Ekki má raska vörðunum, sem eru ævafornar.

 

Rætt var um úrgangsolíutank á bryggju. Rætt um að flytja hann á svæði hjá Áhaldahúsi og senda tilkynningu þess efnis í dreifiriti.

 

Rætt var um framtíð Kópness-rústanna og gamla "barnaskólans". Eitthvað þarf að gera fyrir þessar byggingar sem fyrst eða ryðja þeim úr vegi.

 

Fundi slitið kl. 21:30

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón