A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinnumála- og hafnarnefnd - 21. nóvember 2011

Fundur var haldinn í Atvinnumála- og hafnarnefnd Strandabyggðar mánudaginn 21. nóvember 2011 kl. 18:00 á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3. Mættir voru Elfa Björk Bragadóttir formaður, Jón Eðvald Halldórsson, Jón Vilhjálmur Sigurðsson og Arnar S. Jónsson í forföllum Kristínar S. Einarsdóttur. Arnar ritaði fundargerð.

 
Á dagskrá fundarins var eftirfarandi:

1. Stefnumótun í atvinnumálum á Ströndum og Reykhólahreppi

2. Umsögn vegna umsóknar um ræktunarleyfi ST 2

3. Auglýsing um byggðarkvóta

4. Önnur mál 


Þá var gengið til dagskrár.


1.      
Stefnumótun í atvinnumálum á Ströndum og Reykhólahreppi

Formaður hefur rætt við sveitarstjóra um málið. Verið er að kanna hvort mögulegt sé koma á samvinnu nokkurra  sveitarfélaga  um að standa sameiginlega að gerð stefnumótunarinnar. Málið er því í ákveðnum farvegi.


2.      
Umsögn vegna umsóknar um ræktunarleyfi ST 2

Lagt fram til kynningar. Jón Eðvald vék af fundi. Nefndin gerir engar athugasemdir við erindið en fagnar starfseminni.


3.      
Auglýsing um byggðarkvóta

Lagt fram til kynningar.


4.      
Önnur mál 

Formaður lagði fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 340 og 341.

Formaður skýrði fundarmönnum frá því að framkvæmdir við bryggjuna gengju vel að sögn bryggjuvarðar. Stefnt er að því að steypa kantinn og pollana nú síðar í vikunni.

Formaður þakkaði fundarmönnum kærlega fyrir samstarfið í nefndinni og bar fyrir góðar kveðjur frá Kristínu S. Einarsdóttur sem ekki komst á fundinn. Nefndarmenn tóku undir kveðjuna og þökkuðu kærlega fyrir samstarfið.

 

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18:55.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón